Um Mig

ICE USA
arrowDarkGreen
Helgi Skúli Skúlason
netfang
eg Höfundur ţessarar síđu er fćddur ţann stórkostlega dag 5. september 1983 og var skýrđur Helgi Skúli Skúlason. Ég ćtla ekki ađ rekja neina ćttarsögu hérna .... bíđ međ ţađ ţangađ til ég verđ frćgur, ríkur og gamall. En eitthvađ smávegis kemur ţó. Byrjađ var í Flataskóla viđ 5 ára aldur og ţar var setiđ í ansi mörg ár. Nćsta skólastig var "gaggó" og ţá fór ég í Garđaskóla og klárađi ég ţar grunnskólagöngu mína. Eftir gaggó var ákveđiđ ađ fara í menntaskóla í hinni alrćmdu borg Reykjavík, og valdi ég MH ţar sem skólinn var hugsađur fyrir ţá nemendur sem vildu leggja áherslu á praktískt raunvísindanám. MR er skóli sem var síđur en svo međ praktískt kennsluefni, og ţađ hefur ekkert breyst. Ég útskrifađist sem stúdent af eđlisfrćđibraut í júní 2003. Ţá var loksins komiđ ađ ţví ađ taka stóra skrefiđ, ađ fara í háskóla. Háskólinn sem varđ fyrir valinu var Háskóli Íslands ţví ţađ er eini skólinn sem bauđ upp á ţađ nám í rafmagnsverkfrćđi sem ég hafđi áhuga á.

Samhliđa "venjulegu" akademísku námi ţá var ég mjög virkur í tónlistarlífinu. Viđ 9 ára aldur hóf ég nám viđ Tónlistarskóla Garđabćjar og lagđi ég stund á slagverk. Stuttu eftir ađ ég byrjađi ţá fór ég ađ einbeita mér frekar ađ hljómborđsslagverki og ţá sérstaklega ađ Víbrafóni. Í ţessum skóla var ég til 17 ára aldurs, en ţá fór ég ađ finna fyrir ţví ađ ég ţurfti betri kennara og meiri dýpt í jazz tónlist, svo ţví var ákveđiđ ađ hefja nám viđ Tónlistarskóla FÍH ţar sem gífurleg jazz menning rćđur all flestu. Ţar var ég til 2003 ţegar ég ákvađ ađ leggja tónlistarmennsku á hilluna og einbeita mér ađ háskólanum. Ég hef oft séđ eftir ţeirri ákvörđun ţar sem mig langađi ađ verđa atvinnu slagverksleikari, en ţađ var (og er) lítill markađur fyrir hljómborđsslagverksleikara, svo ţví var ákveđiđ ađ fara frekar út í verkfrćđi og taka ţađ međ trompi! Kosturinn viđ tónlistarmennsku er ađ ţađ er alltaf hćgt ađ byrja aftur, vissulega verđur mađur ekki jafn góđur og mađur var (eđa ţađ er oftast tilfelliđ...) en ţađ er sá möguleiki ađ mađur geti skemmt sér viđ ađ spila tónlist ţegar ég klára akademíska námiđ!

Líf mitt milli 11 og 19 ára aldurs snérist um tónlist og öllu sem tengdist tónlist. Ég hef fariđ til Danmerkur og Skotlands sem hljóđfćraleikari í blástursbandi (ath, ekki lúđrasveit!) og einnig var ég í jazz bandi sem var bođiđ ađ spila í Noregi. Táningsárin einkenndust af mikilli spilamennsku og eyddi ég talsverđum tíma í ađ spila í Perlunni og öđrum veitingastöđum. Á Íslandi hef ég spilađ í einu brúđkaupi, tvisvar fyrir Sjálfstćđisflokkinn, einu sinni fyrir forsetann og hef ótal sinnum spilađ dinner músík í Perlunni og á öđrum veitingastöđum. Viđ ţetta bćtist svo reglubundiđ tónleikahald viđ tónlistarskólana báđa.

Áhugi minn á rafmagni og tölvum kviknađi ansi snemma. Ég var farinn ađ forrita viđ 13 ára aldur og setti saman mínu fyrstu rafeindarás ţegar ég var 15 ára; ţá setti ég saman lítinn einrása audio magnara. Tölvuáhuginn jókst svo međ árunum og listi yfir forritunarmál sem ég hef skrifađ í er kominn í 15 forritunarmál! Ég hef forritađ ýmis hobby verkefni í gegnum árin, en ţó hefur slíkt minnkađ međ árunum. Síđustu ár hef ég mest megnis veriđ ađ sinna rafeinda-hobby-verkefnum. Ég hef tekiđ ţátt í tveimur hönnunarkeppnum á vegum Háskóla Íslands og hef sinnt ýmsum öđrum verkefnum.

Ef fólk vill hafa samband, ţá er best ađ gera ţađ međ tölvupósti eđa spjallforritum. Ég er ákaflega hrifinn af Google Talk, og vil ţví endilega ađ allt msn fólkiđ fari ađ nota gTalk.